sumarhús - soilu 61
Soilu er fallegt straumlínulagað sumarhús sem fellur vel inn í hvaða landslag sem er. Eldhúsið og stofan mynda rúmgott og bjart svæði með mikilli lofthæð og birtan flæðir vel inn um stóra gluggana sem ná alla leið upp undir þak. Hægt að fá bæði í svokölluðu CUT system og einnig sem bjálka.
Verð á efnispakka: kr. 12.500.000 m/vsk.
Innifalið í efnispakka
Teikningar og önnur gögn
- Framleiðsluteikningar fylgja, ekki íslenskar teikningar né heldur íslenskir séruppdrættir
- Efnislisti yfir bjálka
- Efnislisti fyrir allt viðarverk sem er innifalið
- Leiðbeiningar um samsetningu
Útveggir
- Allir bjálkar í útveggi koma heflaðir og tilsagaðir
- Verð á húsum miðast við bjálka 95x195mm
- Glugga- og hurðakarmar
- Einangrunarkítti milli bjálka og í hornin
- Þéttipappi milli gólfplötu og bjálka
- Múrboltar
- Járnlengingar á bjálka
Innveggir
- Allt efni í innveggi sem eru hefðbundir grindarveggir
Þak
- Þaksperrur (cc 900mm)
- Loftunarristar
- Þakkæðning
- Vinklar, gataplötur, naglar
- Loftapanill
Gólfefni
- Aðeins gólfefni í milliloft
Gluggar
- MEKA gluggar hvítir tré- og ál með tvöföldu gleri (ekki opnanlegir)
- MSEA gluggar hvítir tré- og ál með tvöföldu gleri sem opnast inn
- Flugnanet fyrir opnu fögin
Útihurðar
- Hvítar að utan og innan
- Tvöfalt gler í hurðum
- Hurðarkarmar úr hvítir furu
- Þröskuldur úr harðvið
Innihurðar
- Lakkaðar furuhurðar
- Þröskuldar fyrir baðherbergi
- Rennihurðar eru ekki innifaldar
Stigi innanhúss (þar sem við á)
- Lakkaður furustigi
- Stigaþrepin riffluð
Verönd
- Pallaefni í verönd 28x95mm
- Dregarar undir verönd 48×98..198mm cc600
- Efni í handrið 28x95mm og 28x45mm
Húsin afhendast ýmist á hafnarbakka í Reykjavík eða hjá Eimskipum í Hafnarfirði.